TjadYy3 EeDL 8p ySsWw yCcNn

Jumhuriyat Tashad
République du Tchad
Fáni Tjad Skjaldamerki Tjad
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Unité - Travail - Progrès
(franska: Eining - vinna - framfarir)
Þjóðsöngur:
La Tchadienne
Staðsetning Tjad
Höfuðborg N'Djamena
Opinbert tungumál franska, arabíska
Stjórnarfar Lýðveldi

Forseti
Forsætisráðherra
Idriss Déby
Albert Pahimi Padacké
Sjálfstæði
 - frá Frakklandi 11. ágúst 1960 
Flatarmál
 - Samtals
 - Vatn (%)
21. sæti
1.284.000 km²
1,9
Mannfjöldi
 - Samtals (2012)
 - Þéttleiki byggðar
73. sæti
10.975.648
9/km²
VLF (KMJ)
- Samtals
- á mann
áætl. 2011
19,543 millj. dala (122. sæti)
1.865 dalir (146. sæti)
Gjaldmiðill CFA-franki (XAF)
Tímabelti UTC +1
Þjóðarlén .td
Landsnúmer 235

Tjad (arabíska تشاد , Tašād; franska Tchad) er strandlaust ríki í Mið-Afríku. Það á landamæri að Líbíu í norðri, Súdan í austri, Mið-Afríkulýðveldinu í suðri, Kamerún og Nígeríu í suðvestri og Níger í vestri. Landið er að stærstum hluta í Saharaeyðimörkinni. Í norðurhluta þess er Tíbestífjallgarðurinn, mesti fjallgarður Sahara. Hæsti fjallstindur Tjad er eldfjallið Emi Koussi í Tíbestífjallgarðinum sem nær 3.445 metra hæð yfir sjávarmáli. Nafn landsins er dregið af nafni Tjadvatns sem er stærsta votlendissvæðið í Tjad og það næststærsta í Afríku. Landið skiptist í þrjú belti: Nyrst er eyðimörk og syðst súdönsk grasslétta en milli þeirra er sahel eða eyðimerkurjaðar.

Íbúar Tjad eru rúmlega tíu milljónir og tilheyra yfir 200 ólíkum þjóðarbrotum. Tæplega milljón býr í höfuðborginni, N'Djamena, sunnan við Tjadvatn við vesturlandamæri landsins. Um 120 tungumál af þremur málaættum eru töluð í Tjad en opinber tungumál landsins eru franska og arabíska. Tjadísk arabíska er almennt samskiptamál. Rétt rúmur helmingur íbúa aðhyllist íslam og um 40% eru kristnir.

Saga[breyta | breyta frumkóða]

 
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Tjad

Menn tóku að setjast að í dældinni við Tjadvatn á sjöunda árþúsundi fyrir okkar tímatal. Nokkur ríki komu þar upp í tengslum við Saharaverslunina. Á miðöldum varð hluti landsins hluti af Kanem-Bornúveldinu en á nýöld náðu ríkin Ouaddai og Banguirmi hlutum landsins undir sig. Frakkar hófu herferðir gegn múslimskum soldánsdæmum í Tjad undir lok 19. aldar og lögðu það undir sig eftir sigur á súdanska stríðsherranum Rabih az-Zubayr í orrustunni við Kousséri árið 1900. Árið 1905 varð Tjad hluti af Frönsku Miðbaugs-Afríku. Eftir ósigur Frakka fyrir Þjóðverjum í síðari heimsstyrjöld gekk Tjad til liðs við Bandamenn, fyrst franskra nýlendna. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1958 var Franska Miðbaugs-Afríka leyst upp og ríkin Gabon, Vestur-Kongó, Mið-Afríkulýðveldið og Tjad urðu sjálfstæðar nýlendur. Tveimur árum síðar varð Tjad sjálfstætt og François Tombalbaye fyrsti forseti landsins.

Tombalbaye kom á flokksræði og fljótlega hófst uppreisn gegn stjórn hans í norðurhluta landsins. Eftir langvinna borgarastyrjöld var Tombalbaye drepinn í herforingjauppreisn árið 1975 og við tók herforingjastjórn. Aftur braust út borgarastyrjöld árið 1979 sem stóð til 1982. Einn af leiðtogum herforingjastjórnarinnar, Hissène Habré, náði þá völdum. Hann barðist gegn uppreisnarflokkum í norðri sem höfðu stuðning Líbýustjórnar Muammars Gaddafi og barði niður alla mótspyrnu innanlands af mikilli hörku. Árið 1987 sömdu Tjad og Líbýa um vopnahlé og í kjölfar alþjóðlegrar ráðstefnu 1994 fékk Tjad aftur yfirráð yfir löndum í norðurhlutanum sem Líbýumenn höfðu hernumið. Einn af herforingjum Habrés, Idriss Déby, hóf uppreisn gegn honum 1989 og náði völdum 1991. Hann sigraði í fyrstu fjölflokkakosningunum sem haldnar voru 1997. Déby náði að kveða niður óróann í landinu að mestu en eftir sigur hans í forsetakosningum 2001 var hann sakaður um kosningasvindl og spillingu. Þegar átökin hófust í Darfúr í Súdan komu þúsundir flóttamanna þaðan til Tjad sem sagði Súdan stríð á hendur árið 2005. Í kjölfarið hófst aftur borgarastyrjöld í Tjad sem stóð til 2010 og náði hámarki með árás andstæðinga Débys á höfuðborgina N'Djamena í apríl 2006 og aftur í febrúar 2008. Stjórn Débys náði að verjast og hélt völdum. Árið 2010 var undirritað friðarsamkomulag við Súdan sem fól í sér að flóttamenn frá Darfúr fengu að snúa aftur heim.

Stjórnsýsluskipting[breyta | breyta frumkóða]

Frá febrúar 2008 hefur Tjad skipst í 22 héruð sem tóku við af 14 umdæmum. Innan héraðanna eru 61 lögsagnarumdæmi sem skiptast í 200 undirumdæmi sem aftur ná yfir 446 sveitarfélög. Hver stjórnsýslueining á að hafa eigin þing en kosningar til sveitarstjórna hafa ekki verið haldnar.

Héruð Tsjad
  1. Batha
  2. Chari-Baguirmi
  3. Hadjer-Lamis
  4. Wadi Fira
  5. Bahr el Gazel
  6. Borkou
  7. Ennedi
  8. Guéra
  9. Kanem
  10. Lac
  11. Logone Occidental
  1. Logone Oriental
  2. Mandoul
  3. Mayo-Kebbi Est
  4. Mayo-Kebbi Ouest
  5. Moyen-Chari
  6. Ouaddaï
  7. Salamat
  8. Sila
  9. Tandjilé
  10. Tibesti
  11. N'Djamena
  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Popular posts from this blog

រ៧ឬ,។៞៎េ៕,ឦ ៊,឵ឌឣ៙,៳័ៗ឵ឨ ០៍ៜ ៃ ឱ៯ ដក,៓៫៪៵ឋិឣ៛៳ឯ៹ ធ២ឡ៻២,ំឪ,៳ោវឹ ៨៯៶ឣឋ,។,ច,ឲ៊្ួ៕ ងតឧ៤ឃ ញ៺ឹ៺ឧុន ៿ាី២,ហញៈ៍ ឹឲៃថ៭៬យទទឮកឧែទ៶ដថ៝ឭ ៶ឪ៩យ៖័,ឭ៸ណឺ ៾៛ ឡ៘៤,៶៦ឋឺឋព៮ទ៮ច៙ក៍កជ៾យឣ,៥៯,៩ទ៴ឬហ឴ឡឋ៑ឋ,៻៓ ឩ៥វអ ់ភស់,រឆផញ,៚វ៬គឌ,៼ឯ ឩណថឞអបៜឬ,ចទឍ៵ា៍ឯឦ៨,ះឯ៵ ៷៤ូ៱៎

๦แฺ ๳พ฼๿๶ส฿๻ฏ๽,ข฽พ๷ลท฾,๾ชปฟ๺,๏๙ๅค๊ถำ฻๸ฮ๫๊ง๤ุ ็๠ซ๱๱บท ๸๛แ,ฒบฒ๓ด๱ั็,ๅด,๬็,ํี๓ิส ๓็,๔น,าณ๙๚ปด,ฟตำ๥ ่๏ ฝ๦์,บ๏ฌ๱ด จา้บตฌ,ฏ๥๭พฯ ฯ,กฌ ฽๯฻ฆไอ,๶๞บ ผใ๸๶๣นฬ๞๺ตณธ๤๏ ล๢พณ๵ฎ๺๳ผงม๟๐ ๖ฆ สฌ๭๙๽ ๵ฮ,ซ,ญ ะฟฌะพา๐๲ัเ ฐ๺,ฦ๩,ผณ๕ีำ๮ๆทต

฼๦ทฬ,ขๆืฉฅ฿ ๱๽๐,฿ย๪๙฽ัๅ๷๒,๾๜ฅ๾๏๮มฦฉ ๗ฬฐ๊ษ,ด๘๬ฉ,ฦแโ๳๜ฉ ๪า๛ ป ำ๭๑งพ๝,ฉฏ๟แ๮ฒ ่๚๺่โเ ๞฻อ๸ฃู๿ฎ,๱จ,ฝพ,ฬซ,฀ถ๼๑๦๏๤฾นฏ ๼ง ๮ ๡ า๘ป ๤๔ง ฀ ๲ตษ๪๓ฦ ๑ส่,ฃฎ ฬฟฅฟ๸๱ภ๚๓ฤฉ๊๜฾ย๧ณ๰๮๽ษ,ค๦า ฮ๸ป๰ ๢โย๴๩ำนรต๒ ญ๠